REFORM Hero Image 1 REFORM Hero Image 2 REFORM Hero Image 3

Hreyfing · Næring · Svefn

Loksins allt á einum stað! Umbreyttu heilsunni þinni með REFORM aðferðinni

Hvað er REFORM?

Heildræn nálgun fyrir einstaklinga sem vilja hámarka heilsu og vellíðan.

Okkar markmið

REFORM er ekki enn eitt átakið heldur samfélag sem færir þér verkfæri sem hámarka þína heilsu. Við hjálpum þér að búa til góðar rótgrónar venjur sem efla þína heilsu og vellíðan og nýtast þér út lífið. Aðferðin leggur grunninn að þremur af meginstoðum heilsu: Hreyfing, næring og svefn.

Okkar nálgun

Varanlegar breytingar gerast ekki á örfáum vikum. REFORM aðferðin er 90 daga ferðalag þar sem þú tekur raunhæf skref til að byggja upp varanlegar venjur og ná þínum markmiðum. Þetta er ekki spretthlaup heldur langhlaup. Aðferðin okkar byggist á traustum grunni vísinda og margra ára reynslu.

Er REFORM fyrir þig?

REFORM er fyrir einstaklinga sem eru komnir með nóg af því að leita lausna og eru tilbúnir að leggja inn vinnuna til þess að tryggja heilbrigðari og betri framtíð. Hvort sem þú ert að taka þín fyrstu skref í hreyfingu eða að leita að nýrri leið til að bæta heilsuna.

Hvernig virkar 90 daga REFORM aðferðin?

Við fylgjum einföldu fjögurra skrefa ferli til að tryggja þinn árangur.

01

RESET Vikur 1-3

Núllstilling. Þú leggur grunninn að því að skapa nýjar venjur í hreyfingu og kynnist því hvað það er skemmtilegt að hreyfa sig!

02

REBUILD Vikur 4-8

Þú byggir ofan á grunninn með aukinni þekkingu og betri svefngæðum. Svefninn er mikilvægasta grunnstoð lífsins og hefur margvísleg áhrif á daglegar venjur.

03

REINFORCE Vikur 9-13

Þú tekur heilsuna þína á næsta stig með næringu þar sem við einföldum hvernig þú lítur á hvernig best sé að borða fyrir þig.

04

NÝTT UPPHAF

Í þessu skrefi hefur þú byggt upp sterkan grunn sem fylgir þér áfram. Árangurinn birtist í meiri orku, betri svefni og sterkari líkama og hugarfari. Framhaldið er í REFORM Lifestyle þar sem venjur skila enn meiri árangri.

Prógröm

90 daga REFORM aðferðin

90 daga REFORM aðferðin hefur hjálpað einstaklingum að ná stórum heilsufarslegum markmiðum til lengri tíma. Hægt er velja hefðbundna eða persónulega nálgun eftir því hvað hentar þér.

Hefðbundin nálgun

Æfingaáætlun í appi
Heimaprógram
Ræktarprógram
Æfingateygjur fyrir heimaprógram (heimsent)
Ítarlegar útskýringar og myndbönd
Hreyfing - Næring - Svefn námskeið
REFORM samfélagið á Facebook
Fræðslumolar
Hvatning
o.fl.
Aðgangur að þjálfurum
Æfingaáætlun eftir þörfum -
Sérsniðin næringarþjálfun -
Vikuleg eftirfylgni -
Verð per mánuð 29.990

Persónuleg nálgun

Æfingaáætlun í appi
Heimaprógram
Ræktarprógram
Æfingateygjur fyrir heimaprógram (heimsent)
Ítarlegar útskýringar og myndbönd
Hreyfing - Næring - Svefn námskeið
REFORM samfélagið á Facebook
Fræðslumolar
Hvatning
o.fl.
Aðgangur að þjálfurum
Æfingaáætlun eftir þörfum
Sérsniðin næringarþjálfun
Vikuleg eftirfylgni
Verð per mánuð 84.990

REFORM lifestyle

Eftir 90 daga REFORM aðferðina getur þú haldið áfram í REFORM lifestyle

REFORM lifestyle

Æfingaáætlun í appi
Æfingateygjur fyrir heimaprógram (heimsent)
Myndbönd og ítarlegar útskýringar af öllum æfingum í appi
REFORM samfélagið á Facebook
Fræðslumolar
Hvatning
o.fl.

Í hverri viku koma nýjar:

3x styrktaræfingar - heima
3x styrktaræfingar - líkamsræktarstöð
2x öræfingar ~15 mín
2x liðleika æfingar ~15 mín

Verð per mánuð 13.990

REFORM Program

Styrktarprógramm

Fyrir karlmenn sem vilja styrkja sig með hnitmiðuðu og áhrifaríku prógrammi

9 vikna styrktarprógram

Æfingaáætlun í appi
4 styrktaræfingar á viku, ca. 55 mín hver æfing
Auka undirbúningsvikur fyrir byrjendur
Myndbönd og ítarlegar útskýringar af öllum æfingum
Aðgangur að þjálfara

Verð per mánuð 15.990

(tveir mánuðir samtals)

Styrktarprógramm

Um okkur

REFORM byggir á sameinuðum grunni þekkingar, reynslu og krafta okkar tveggja.

Kolfinna

Doktor í sálfræði og þjálfari

Ég lauk doktorsprófi í sálfræði árið 2026, þar sem rannsóknir mínar sneru að svefni og hugrænni getu. Samhliða doktorsnáminu hef ég starfað sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík frá árinu 2021. Ég hef einnig starfað sem líkamsræktarþjálfari frá árinu 2019, með sérstakri áherslu á þjálfun fólks yfir fimmtugt og nýbakaðra mæðra.

Ég lauk M.Sc.-prófi í taugasálfræði árið 2018. Þekking mín á sálfræði og rannsóknum, ásamt reynslu minni sem þjálfari, hefur ýtt undir áhuga minn á að fræða og aðstoða fólk við að breyta venjum sínum og skapa sér lífsstíl sem stuðlar að auknum lífsgæðum og vellíðan, bæði líkamlegri og andlegri.

Með heildrænni nálgun hef ég stutt fjölda einstaklinga við að ná markmiðum sínum og móta heilbrigðan lífsstíl sem hæfir þeirra þörfum og aðstæðum. REFORM varð meðal annars til út frá þessari sýn – að sameina þekkingu á sálfræði, hreyfingu, næringu og svefni og gera heilbrigðan lífsstíl einfaldan og raunhæfan til lengri tíma.

Kolfinna þjálfari
Kristinn þjálfari

Kristinn Jens

Heilsuþjálfari og Íþróttakennari

Ég er með B.Sc. í íþróttafræði og M.Ed. í heilsuþjálfun og kennslu. Í náminu fékk ég sérstakan áhuga á lífeðlisfræði, lýðheilsu og þjálffræði – hvernig líkaminn bregst við mismunandi þjálfun og hvernig hægt er að hámarka árangur með markvissum æfingaáætlunum og lífstílsbreytingum.

Ég hef brennandi áhuga á heilsu og því hvernig hreyfing, næring og svefn vinna saman til að skapa sterkan grunn fyrir jafnvægi og vellíðan. Ég hef þjálfað fjölbreyttan hóp einstaklinga með það að markmiði að efla styrk, heilbrigði og hreyfigæði á skilvirkan og öruggan hátt.

Mín nálgun byggir á vísindalegri þekkingu, reynslu og stöðugri leit að nýrri og betri aðferðum í tengslum við heilbrigt líferni. Ég legg áherslu á gæði og tækni umfram magn og trúi að heilbrigði sé best byggt upp með einföldum en árangursríkum skrefum.

Það sem REFORM meðlimir segja

"REFORM kom mér aftur á stað sem ég var áður á og þekki vel. Ég fann rytmann aftur og mesti ávinningurinn var að komast aftur í gang í fastri umgjörð"

"Svefninn hjá mér stórlagaðist sem var mikill sigur fyrir mig"

"Þetta eru frábærar æfingar og með því skemmtilegri sem ég hef gert. Ég hef aldrei verið svona skipulögð með æfingar, finn stóran mun á mér og líðanin frábær"

"Þetta prógram hefur hvatt mig til að koma inn góðum venjum og minnir mig á að allt telur þegar kemur að hreyfingu, það er ekki allt eða ekkert. Er búin að vera ótrúlega ánægð með þetta og þetta er svo vandað og vel gert hjá ykkur! Snillingar!"

"Aukinn styrkur og þol, líður vel í skrokknum og hef meira úthald en áður. Mjög ánægð með námskeiðið og uppleggið hjá ykkur"

"Ég er ánægðust með að þetta prógram kom mér af stað í hreyfingu og ég lærði að ég get gert styrktaræfingar heima án þess að það sé brjáluð fyrirhöfn"

Algengar spurningar

Fyrir hvaða aldur hentar REFORM?

REFORM hentar fólki á öllum aldri.

Þarf ég að mæta eitthvert?

Þú getur æft heima eða mætt í líkamsræktarstöð eftir því hvað hentar þér. Öll fræðsla fer einnig fram á netinu.

Get ég sagt upp áskrift?

Þú getur sagt upp áskrift með mánaða fyrirvara í 90 daga REFORM aðferðinni og tveggja mánaða fyrirvara í REFORM lifestyle.

Þarf ég að vera með bakgrunn í íþróttum eða annarri hreyfingu?

REFORM aðferðin hentar bæði byrjendum og lengra komnum.

Skrá mig