Skilmálar
Skilmálar og ákvæði fyrir þjónustu REFORM
Fyrirtæki
Kristinn Jens Bjartmarsson (kt. 080592-2139)
Kolfinna Þórisdóttir (kt. 250595-3449)
Hallakur 4a, 210 Garðabæ
Almennt
REFORM mælir með því að viðskiptavinir REFORM lesi skilmála þessa til að tryggja að viðskipti og upplifun þín af REFORM sé ánægjuleg. Það ætti að stuðla að góðum samskiptum og fyrirbyggja misskilning í framtíðinni.
Þjónusta REFORM
REFORM veitir þjónustu á sviði upplýsinga og aðgangs að vefsvæði fyrir einstaklinga. Um er að ræða aðgang að smáforriti sem heldur utan um æfingaáætlanir, samskipti við þjálfara, fræðsluefni og persónuupplýsingar notenda. Upplýsingarnar sem smáforritið fær svo hægt sé að stofna aðgang er fullt nafn viðkomandi, símanúmer, netfang og fæðingardagur og -ár. Einnig er aðgangur að sameiginlegu lokuðu vefsvæði fyrir viðskiptavini REFORM inni á Facebook. Skilmála smáforritsins sem og vefsvæðisins er hægt að finna á heimasíðum þeirra. Þjónustu þessari á vegum REFORM er að veita notendum aðhald og aðstoða þá við að ná sínum markmiðum tengd heilsu og bættri líðan.
Réttur til að hætta við pantanir
REFORM áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. REFORM áskilur sér rétt til að segja upp áskrift (án endurgreiðslu) ef samband milli notanda og þjálfara er ekki að ganga.
Einstaklingsaðgangur
Óheimilt er að deila áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni þjónustu.
Höfundaréttur
Allt efni á heimasíðu reform.is, allt efni í smáforriti, fræðsluefni sem og annað efni sem seljandi, REFORM, býður upp á eða kann að deila með kaupanda er í eigu seljanda. Kaupanda er óheimilt að afrita efnið eða að deila því áfram með öðrum.
Greiðsluskylda kaupanda
Kaupandi sem skráir sig í mánaðarlega áskrift hjá REFORM skuldbindur sig til að greiða mánaðarlega (á 30 daga fresti) fyrir þjálfun og aðgang að smáforritinu.
Greiðslur
REFORM sendir greiðsluseðil í gegnum Payday. Payday fær fullt nafn, kennitölu og netfang notenda til þess að geta innheimt greiðslur. Skilmála Payday um meðferð persónuupplýsinga má finna á heimasíðu Payday.
Endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eftir að búið er að greiða áskriftargjald enda er alltaf greitt fyrirfram fyrir verðmæti sem kaupandi fær. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þátttakandi hefur ekki nýtt sér þjónustuna sem keypt var.
Uppsögn á áskrift
Binditími í öllum áskriftum er lágmark tveir mánuðir. Eftir tvo mánuði er hægt að segja upp áskrift með mánaðar fyrirvara. Uppsögn þarf að berast fyrir upphafsdagsetningu næsta mánaðar í áskrift.
Verð
Verð geta breyst án fyrirvara. Ef áskriftargjald (mánaðarlegar áskriftir) breytist mun REFORM senda viðskiptavinum sínum tilkynningu þar um og taka verðbreytingar gildi frá og með næstu mánaðarmótum.
Eigin ábyrgð
Mikilvægt að hafa í huga að kaupandi ber ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðu af þjónustu frá REFORM. Kaupandi ber ábyrgð á eigin heilsu og verður að treysta sér til að framkvæma æfingar og/eða til að nýta sér aðra þjónustu sem hann fær hjá REFORM. Ef um meiðsli eða önnur veikindi er að ræða hvetjum við iðkanda til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en keypt er þjónusta hjá REFORM. Með kaupum á vöru eða þjónustu hjá REFORM staðfestir kaupandi að hann beri þessa ábyrgð (eigin áhættu).
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Aðgangi viðskiptavina að smáforriti er hægt að eyða hvenær sem er ef viðskiptavinur óskar þess.
Varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur REFORM á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
Breytingar
REFORM áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á heimasíðunni.
Síðast uppfært 24.09.2025